Frá og með 1. janúar 2013 heyrir Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins sögunni til og verkefni hennar flytjast til Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands og Rannís.

Verkefni tengd Háskóla Íslands (t.d. stúdenta- og starfsmannaskipti) eru hjá Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands

 
 

Fréttir og tilkynningar

Háskóli Íslands hlýtur styrk til Erasmus Mundus vekefnis í landupplýsingum og umhverfisfræðum GEM 31.08.2010

Erasmus Mundus meistaragráða í landupplýsingum og umhverfisfræðum - GEM, sem stendur fyrir Geo-Information Science and Earth Observation for Environmental Modelling and Management, er sameiginleg meistaragráða fimm háskóla í Evrópu sem nýlega var styrkt af Erasmus Mundus áætluninni. Námsleiðin var ein 29 umsókna sem hlutu styrk til næstu fimm ára en alls 181 umsókn bárust áætluninni að þessu sinni. Sameiginlegt hágæða nám á meistara- og doktorsstigi er grunnurinn í Erasmus Mundus áætluninni, sem ætlað er að bæta gæði háskólanáms í Evrópu og efla tengsl við lönd utan Evrópu.
 
Samstarfsháskólarnir í GEM-námsleiðinni eru auk Háskóla Íslands, Háskólinn í Lundi í Svíþjóð, Háskólinn í Varsjá í Póllandi, Háskólinn í Southampton í Englandi og Háskólinn í Twente í Hollandi sem jafnframt fer fyrir verkefninu. Umsjón með GEM hér heima hefur Land- og ferðamálfræðistofa.
 
Í náminu er lögð áhersla á nýtingu landupplýsingatækni í umhverfisfræðum  og í skipulagi og stjórnun umhverfisauðlinda. Nemendur dvelja eitt misseri í hverju þátttökulandanna og fá þannig tækifæri á að kynnast mismunandi menningu og umhverfi í Evrópu. Þá er jafnframt möguleiki fyrir áhugasama að gera hluta rannsóknaverkefnisins við Háskólinn í Sydney í Ástralíu.
 
Heimasíða GEM er www.gem-msc.org;
Frekari upplýsingar um námið veitir Rannveig Ólafsdóttir, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild.

Til baka...