Skiptinám - stúdentaskipti
Ef þú ert nemi í einhverjum háskóla á Íslandi, átt þú þess kost að taka hluta af námi þínu við erlendan háskóla í skiptinámi. Það er einfaldara og yfirleitt mun ódýrara heldur en að fara í fullt nám á eigin vegum. Þá dvelur þú við gestaskóla erlendis eitt misseri eða tvö, en lýkur síðan náminu við þinn heimaskóla hér á landi.
Skólagjöldin við gestaskóla eru yfirleitt niðurfelld og gestaskóli aðstoðar við húsnæðisleit. Helstu skiptinemaáætlanir fyrir háskólanema eru Erasmus til Evrópusambandslanda og Nordplus til Norðurlandanna og Eystrasaltslanda. Veittir eru ferðastyrkir og dvlarstyrkir í þessum stúdentaskiptum.
Fyrir utan samstarf í gegnum Erasmus og Nordplus hafa margir háskólar hér á landi gert tvíhliða samninga við einstaka erlenda háskóla.
Þú færð nánari upplýsingar um hvert er hægt að fara í skiptinám hjá alþjóðafulltrúa eða á alþjóðaskrifstofu í þínum heimaskóla.
Upplýsingasíða um Erasmus http://erasm.us