Nýsköpunarmiðstöð Íslands heldur utan um átaksverkefni um markvissa upplýsinga-miðlun um fjármögnunarleiðir innan norræns samstarfs. Markmiðið er að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé. Frumkvæði að verkefninu og fjármögnun þess kemur frá Norrænu ráðherranefndinni.
Verkefnisstjóri er Kjartan Due Nielsen en hann veitir ráðgjöf og stuðning og leiðbeinir m.a. við umsóknarskrif og við myndun tengslaneta. Hafa má samband við Kjartan með því að senda tölvupóst: kjartan@nmi.is eða í síma: 522-9246.
Nordic Master Program er ætlað að styrkja sameiginlegt meistaranám á Norðurlöndum. Í boði eru 6 styrkir allt að 1 milljón danskra króna fyrir hverja námsleið. Nánari upplýsingar er að finna á vef SIU sem sér um úthlutun styrkjanna fyrir hönd norrænu ráðherranefndarinnar.
Nordic Baltic Mobility Program er ætlað að styrkja mannaskipti í stjórnsýslu, viðskipta og menningarlífi. Um er að ræða þrjár áætlanir.
Sjá nánari upplýsingar um:
Nordic Baltic Mobility í stjórnsýslu – umsóknarfrestur 30. apríl
Nordic Baltic Mobility í viðskiptalífi – umsóknarfrestur 30. apríl
Nordic Baltic Mobility í menningarlífi – umsóknarfrestur 4. mars
Norrænt-rússneskt samstarf er nýtt samstarfsverkefni sem hefur það markmið að styrkja samvinnu Norðurlandanna og Rússlands á sviði menntunar, allt frá grunnskólanámi til háskólastigsins. Norræna ráðherranefndin styrkir því undirbúningsverkefni sem vinna að frekari samstarfi í þessu sviði. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SIU, ásamt umsóknareyðublöðum.
Norræna félagið á Íslandi var stofnað árið 1922. Markmið félagsins er að efla norrænt samstarf, einkum í félags-, menningar- og umhverfismálum. Á heimasíðu þeirra er mikið af upplýsingum um norrænt samstarf.
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri var formlega opnuð 13. október 1996. Norræna ráðherranefndin hefur stuðlað að opnun 8 slíkra skrifstofa á Norðurlöndunum. Aðalhlutverk slíkrar skrifstofu er að veita upplýsingar um norrænt samstarf og stuðla að samvinnu þeirra sem vinna að norrænum málum. Á skrifstofunni er m.a. hægt að fá upplýsingar um norræna styrki og umsóknareyðublöð í tengslum við þá og margt fleira. Skrifstofan leitast við að aðstoða við sýningar, fundi, nemendaskipti o. fl. Allir sem áhuga hafa á norrænu samstarfi snúi sér til Norrænu upplýsingaskrifstofunnar.
Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem ætlað er að aðstoða einstaklinga sem flytjast búferlum milli norrænna ríkja og lenda í erfiðleikum í samskiptum sínum við yfirvöld. Við veitum gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem ætla að vinna, stunda nám, leita sér að vinnu eða setjast að í öðru norrænu landi.
Í Norræna húsinu fer fram fjölþætt starfsemi sem miðar að því að kynna okkur Íslendingum það sem efst er á baugi hverju sinni í menningarlífi og samfélagi hinna Norðurlandaþjóðanna. Áhersla er lögð á að kynna Norðurlönd fyrir börnum og unglingum m.a. með því að taka á móti skólahópum á öllum stigum skólagöngunnar. Kvikmyndasýningar fyrir börn eru yfir vetrarmánuðina og Barnahellir er starfandi í tengslum við bókasafnið. Norrænir sendikennarar við Háskóla Íslands hafa skrifstofur og kennsluaðstöðu í húsinu.
Nordisk Sprogkoordination (NOSK) var stofnuð árið 2009 þegar Norræna ráðherranefndin kynnti nýtt skipulag á sviði norræna mála. NOSK er ætlað að styrkja og samþætta samvinnu á sviði norræna mála. Á heimasíðu Nordisk Sprogkoordination má finna umfangsmikið safn hlekkja um norræn tungumál, kennsluefni, almennar upplýsingar og margt fleira
http://www.nordisksprogkoordination.org/
Danska málnefndin (Dansk Sprognævn, DNS) hefur umsjón með NOSK.