Hér eru svör við nokkrum algengum spurningum varðandi umsóknir í Nordplus áætlunina

  • Nánari upplýsingar um Nordplus, einstaka áætlanir, reglur og umsóknaferli má finna í handbók Nordplus

 

Hvar sæki ég um?

  • Allar umsóknir fyrir Nordplus eru unnar í ARS umsóknakerfinu ars.norden.org
  • Leiðbeiningar fyrir umsóknir í ARS (ARS user guide) (pdf 12149k)


Hvenær er umsóknarfrestur?

  • Umsóknarfrestur í Nordplus er 1. mars ár hvert. (í einstaka tilvikum er bætt við aukaumsóknarfresti að hausti)
  • Aukaumsóknafrestur fyrir undirbúningsheimsóknir er 15. október ár hvert. Undirbúningsheimsóknir eiga einungis við í Nordplus Junior og Nordplus Voksen.

 

Hvað þarf ég marga samstarfsaðila í verkefni?

  • Að öllu jafnaði þurfa samstarfsaðilar frá þremur löndum að taka þátt í verkefni Nordplus.
  • Þegar um námsheimsóknir (í Junior og Voksen) er að ræða nægir samstarf skóla / stofnana í tveimur löndum.

Á hvaða tungumáli þarf umsóknin að vera?

  • Hægt er að skrifa umsóknir á ensku og norðurlandatungumálum (dönsku, norsku og sænsku).
  • Ekki er hægt að skrifa umsóknir á íslensku.
  • Ef samstarfsaðili í verkefninu kemur frá Eystrasaltslöndunum, verður umsóknin að vera skrifuð á ensku.
  • Umsóknir í Nordplus Sprog eiga að vera á dönsku, norsku eða sænsku.

 Hvað einkennir góða umsókn?

  • Góður undirbúningur – þróa hugmynd og finna samstarfsaðila fyrirfram.
  • Skýr hugmynd – er auðvelt fyrir utanaðkomandi að skilja verkefnið?
  • Árleg áhersluatriði – skírskotun til eins eða fleiri árhersluatriða áætlunarinnar.
  • Samstarfsaðilar – hvers vegna? Skýr hlutverkaskipting og ábyrgð.
  • Markhópur – fyrir hverja er verkefnið? Hvert er samhengið?
  • Dreifing niðurstaðna – Hvernig? Ná niðurstöður til annarra en aðstandenda?
  • Sjálfsmat – Hvernig á að meta árangur verkefnisins?

Hversu háir eru Nordplus styrkir?

  • Hægt er að sækja um styrk allt að 50% af heildarupphæð verkefnis.
  • Í Nordplus Voksen og Junior er hægt að sækja um styrk allt að 75% af heildarupphæð verkefnis.
  • Fyrir bekkjaheimsóknir og undirbúningsheimsóknir kennara er hægt að sækja um 100% styrk. Sjá kostnaðarviðmið 

Hvernig geri ég fjárhagsáætlun?

  • Í ARS umsóknakerfinu er beðið um að setja inn kostnað fyrir alla hluta verkefnisins.
  • Auk þess er óskað eftir að skýr kostnaðaráætlun sé sett sem viðhengi inn í kerfið -- ath. á ekki við námsheimsóknir og undirbúningsheimsóknir (mobility).
  • Hér er dæmi um skýra fjárhagsáætlun (hægt að nota sem viðmið, fjárhagsáætlanir verkefna geta verið misjafnar).