Hægt er að koma og fá aðstoð við leit að námi og við aðra upplýsingaöflun sem við kemur námi erlendis. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í gegnum tölvupóst.
Upplýsingastofan er öllum opin.
Senda tölvupóst á Áslaugu Jónsdóttur: aslaugj(hjá)hi.is
Senda tölvupóst á Sigríði Völu Vignisdóttur: svv(hjá)hi.is
Tölvupóstfang Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins: ask(hjá)hi.is
KILROY education
Kilroy education er ókeypis ráðgjafarþjónusta fyrir ungt fólk og námsmenn sem vilja mennta sig erlendis. KILROY getur hjálpað þér að sækja um nám erlendis og gefur þér upplýsingar um ýmsa möguleika á háskólum sem henta þér víðsvegar um heiminn. KILROY er í samstarfi við ákveðna háskóla í Kína (Hong Kong), Japan, Singapúr, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Englandi, Kanada og Bandaríkjunum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu KILROY education
Námsstyrkir í Seoul, Kóreu.
KDI School of Public Policy and Management í Seoul, Kóreu, auglýsir námsstyrki í boði vegna meistaranáms við skólann á tímabilinu febrúar – desember 2012. Skólinn býður upp á tvær námsleiðir, Master of Development Policy (MDP) og Master of Public Policy (MPP). Styrkur felst í skólagjöldum, flugfari og mánaðarlegum styrk vegna uppihalds. Nánari upplýsingar um námið er að finna á heimasíðu skólans og nánari upplýsingar um umsóknargögn er að finna hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. Umsóknarfrestur er 28. október 2011.
Styrkur til náms í Tyrklandi skólaárið 2011-2012
Izmir University of Economics í Tyrklandi býður einum íslenskum námsmanni í grunnnámi upp á námsstyrk skólaárið 2011-2012. IUE er háskóli í borginni Izmir sem er þriðja stærsta borg Tyrklands staðsett á vesturströnd landsins. Borgin er þekkt fyrir verslun og viðskipti.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans: http://www.ieu.edu.tr/en/#
Alþjóðaskrifstofa skólans gefur einnig upplýsingar:
Tengiliður: Hülya Incekara
Sími: +90 (232) 4888 350
Netfang: oia@ieu.edu.tr
Umsókn sendist til:
Hülya Incekara
Izmir University of Economics
Office of International Affairs
Aakarya Cd. No: 156 Balcova, Izmir, Turkey
Umsóknarfrestur er 22. ágúst 2011
MEXT Styrkir til grunn- og framhaldsnáms í Japan 2012
Vakin er athygli á að umsóknarfrestur um styrki til háskólanáms í Japan 2012 er 1. júlí 2011. Nánari upplýsingar er að finna í Handbók um styrki.
Toelf og Gre prófskráning
Margir hafa átt í erfiðleikum með að skrá sig í þessi próf, einkanlega þegar kemur að því að borga með kreditkorti. Stundum virkar að prófa aðra tölvu eða að nota annað kort (heyrst hefur að Masterkort gangi best). Oft er farið fram á vottunarnúmer á Visa-kortum, þá þarf að hringja í Valitor og fá það númer uppgefið (fjögurra stafa númer). En ef ekki gengur að klára skráninguna í gegnum netið er hægt að hringja á hollenska skráningarskrifstofu í síma 00 31 - 320 239 540 og skrá sig í gegnum símann.
Athugið vegna skólagjalda í Bretlandi
Þeir sem hyggjast fara í nám í Bretlandi ættu að athuga að möguleiki er á því að að borga sömu skólagjöld og Bretar og aðrir frá Evrópusambandslöndum, svokölluð "home fees" í stað þess að borga "oversees fees", sem geta verið þrisvar eða fjórum sinnum hærri. Ein leið til þess að borga "home fees" er að fara til Bretlands til þess að vinna, en ekki til þess að fara í nám og vinna í einhvern tíma áður en nám hefst. Vinnan þarf þó að tengjast náminu sem farið er í. Sjá hérna af síðuUK Council for International Student Affairs UKCISA, pdf sjkal um reglurnar vegna skólagjalda í Bretlandi, sjá einkanlega "category 6". Sjá einnig sérstakar reglur fyrir Skotland, eilítið öðruvísi: Pdf.
Námsstyrkir í Abu Dhabi í verkfræði, umhverfisfræði og upplýsingatækni
Forseti Íslands hefur tilkynnt um styrki til sex til tíu íslenskra námsmanna í verkfræði, umhverfisfræði og upplýsingatækni. Nánar má lesa um styrkinn og umsóknarferlið í Handbók um styrki, sjá einnig hér til vinstri.
Evróvísir upplýsir um tækifæri ungs fólks
Ef þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.