Próf

TOEFL - Test of English as a Foreign Language.

Öll skráning í Toefl prófin fer fram beint í gegnum skráningarsíðuna þeirra, http://www.ets.org/toefl . Skrá þarf sig minnst 7 dögum fyrir áætlaðan prófdag í "internet based" próf, Toefl IBT. IBT prófið kostar 200$. Hér er að finna æfingapróf.

Internet based prófin, Toefl IBT, eru haldin í PROMENNT, Skeifunni 11b. Ekki er lengur boðið upp á skrifleg próf hér á landi, a.m.k. ekki sem stendur.

Þeir sem vilja biðja um lengri próftíma, t.d. vegna lesblindu eða þurfa sérstakt aðgengi vegna fötlunar, þurfa yfirleitt lengri umsóknarfrest sjá "Test takers with disabilities" inn á upplýsingasíðu Toefl.

Upplýsingastofa um nám erlendis lánar út kennslugögn fyrir prófið. Borga þarf tryggingagjald þegar bók er tekin að láni (5000 kr), sem fæst endurgreitt þegar bók er skilað. Eingöngu er hægt að borga í peningum.

GRE - Graduate records examination.

Próf, ætlað fyrir þá sem ætla í framhaldsnám (graduate) í Bandaríkjunum. Flestir þurfa að taka Gre general test. Háskóli Íslands sér um framkvæmd þess prófs. Það er haldið í Reykjavík u.þ.b. tvisvar á ári. Upplýsingastofa lánar út kennslugögn fyrir prófið.

GMAT- Graduate Management Admissions Test.

Hægt er að taka Gmat prófið hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustinni. Prófin eru haldin eftir þörfum en æskilegt að menn skrái sig í próf á föstudögum. Hægt verður að prófa tvo í senn þannig að ef aðsókn er mikil getur þurft að dreifa fólki á daga. Allar nánari upplýsingar má fá með því að hringja í Tölvu- og verkfræðiþjónustuna í síma 520 9000 eða með því að tengjast vefsíðu GMAT prófanna. Upplýsingastofa lánar út kennslugögn fyrir prófið.

TestDaF - Test für Deutsch als Fremdsprache.

Alþjóðlegt þýskupróf, fyrir þá sem ætla í háskólanám til Þýskalands. Prófið er yfirleitt haldið tvisvar á ári í Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands, yfirleitt í nóvember og apríl. Skráning fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ. Prófgjaldið er 150 Evrur. Nánari upplýsingar: Tungumálamiðstöð HÍ. Nýja Garði: 525 4593, ems(hjá)hi.is og TestDaf-Institut

Upplýsingastofa um nám erlendis lánar út kennslugögn (bók og tölvudiskur) fyrir TestDaF prófið gegn tryggingagjaldi, 2.500 kr. sem fæst endurgreitt þegar bók er skilað.

SAT prófið og ACT

SAT er inntökupróf fyrir þá sem vilja fara í grunnnám til Bandaríkjanna, þ.e. fjögurra ára nám til Bachelor gráðu. Ekki er lengur hægt að taka þetta próf hér á landi, en prófastöðvar víða um heim eru með SAT prófið. Hins vegar er hægt að taka ACT prófið nokkrum sinnum á ári hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og hjá Kvennaskólanum. ACT er svipað próf og SAT og flestir háskólar taka það gilt.

DELE - spænskupróf í Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands

Prófin eru haldin á vegum Menningarmálastofnunar Spánar (Instituto Cervantes) og farið er yfir prófin á Spáni. Boðið er upp á 3 mismunandi próf: Nivel inicial, Nivel intermedio og Nivel superior. Nivel inicial miðast við 2 ára nám í framhaldsskóla, Nivel intermedio er ætlað þeim sem hafa lokið áföngum 600 eða 700 í framhaldsskóla og dvalið í spænskumælandi landi. Nivel superior krefst mjög góðrar spænskukunnáttu, B.A. eða samsvarandi
og þekkingar á menningu Spánar. Prófin eru haldin tvisvar á ári, á vorin og á haustin ef þátttaka er næg. Nánari upplýsingar í Tungumálamiðstöð eða hjá Instituto Cervantes

Alþjóðlegu spænskuprófin DELE verða haldin föstudaginn 16. nóvember í Háskóla Íslands. Prófin eru haldin á vegum Menningarmálastofnunar Spánar (Instituto Cervantes), innritun fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ. Frestur til innritunar er 12. október.

DELF og DALF

Alþjóðleg frönskupróf, ætluð þeim sem stefna á háskólanám í Frakklandi. Prófin eru tekin hjá Alliance française

IELTS

Enskupróf; ekki er hægt að taka þetta próf hér á landi, sjá hér prófastöðvar erlendis. Flestir breskir háskólar viðurkenna TOEFL prófið þegar sótt er um skóla, en fara fram á að umsækjendur taki IELTS eða önnur tungumálapróf við skólann þegar á staðinn ef komið.